Fréttir

Ábyrgð áhorfenda

Kæru gestir Landsmóts - vinsamlegast athugið! Gott er að hafa í huga að gestum er ekki leyfilegt að ræða við eða segja til þeim knöpum sem eru í braut í keppni.

Það er BALL í kvöld!

ATH! Svindl síður

Kæru landsmótsgestir! Við viljum vekja athygli ykkar á því að óprúttnir aðilar hafa sett upp svindl síður á samfélagsmiðlum og þá aðallega Facebook. Þessar síður eru nú að reyna að selja áhugasömum "Live stream" eða lifandi streymi af keppni Landsmóts. Allt streymi af mótinu er hjá ALENDIS, www.alendis.is, og hvergi annarsstaðar.

Eik og Blær efst eftir milliriðla

Keppni í milliriðlum í unglingaflokki er nú lokið. Það er Eik Elvarsdóttir á Blæ frá Prestbakka sem leiðir og kemur efst inn í A-úrslit með einkunnina 8,75. Á hæla hennar kemur Elva Rún Jónsdóttir á Straum frá Hofsstöðum, Garðabæ, með einkunnina 8,71.

Niðurstöður fyrri umferðar í skeiðkappreiðum

Fyrri umferð skeiðkappreiða fór fram í gærkvöldi. Keppt er á skeiðbrautinni hjá kynbótavelli. Góðir tímar náðust en spennandi verður að fylgjast með seinni umferð kappreiðanna á morgun, föstudag, kl.16:20. Þá verða landsmótssigurvegarar í 150m og 250m skeiði krýndir. Ljósmynd @collet.bert

Matseðill dagsins hjá Spírunni og Kokkunum

Yfirlit hryssur

Dagskrá fimmtudagsins 4.júlí

Jón Ársæll og Harpa leiða fimmganginn

Forkeppni í fimmgangi fór fram í kvöld. Landsins bestu hestar og knapar mættu til leiks. Að lokinni forkeppni stendur efstur ungmennið Jón Ársæll Bergmann á hryssunni Hörpu frá Höskuldsstöðum með einkunnina 7,33.

Védís og Ísak í forystu í Ungmennaflokki eftir milliriðla