ATH! Svindl síður

Kæru landsmótsgestir!
Við viljum vekja athygli ykkar á því að óprúttnir aðilar hafa sett upp svindl síður á samfélagsmiðlum og þá aðallega Facebook. Þessar síður eru nú að reyna að selja áhugasömum "Live stream" eða lifandi streymi af keppni Landsmóts. Allt streymi af mótinu er hjá ALENDIS, www.alendis.is, og hvergi annarsstaðar.
Rétta facebook síða mótsins er Landsmot hestamanna (ekki með ó-i og engu ártali), síðan er "like-síða" með um 17þús fylgjendum og við sendum ENGAR vinabeiðnir til fólks.

Athugasemdir