Ábyrgð áhorfenda

Kæru gestir Landsmóts - vinsamlegast athugið! Gott er að hafa í huga að gestum er ekki leyfilegt að ræða við eða segja til þeim knöpum sem eru í braut í keppni. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að áhorfendur koma á hestamót sér til ánægju og ekki er hægt að neita þeim um þann rétt að tjá skoðanir sínar. Samt sem áður ættu þeir af sanngirnisástæðum að gæta þess að hafa ekki áhrif á sýningar hrossa eða ákvarðanir dómara. Áhorfendur skulu forðast að trufla hesta í sýningu.


Athugasemdir