Landsmót gerir sitt allra besta til að öllum gestum líði vel á Landsmótssvæðinu. Ákveðin stæði hafa verið tekin frá á svæðinu, við báða vellina, þar sem fatlaðir munu geta lagt bílum sínum og horft á keppnina og kynbótasýningar mótsins á besta stað.
Þeir einstaklingar sem telja sig eiga rétt á þessum stæðum, þurfa að koma á skrifstofu mótsins með sinn venjulega bílastæðapassa fyrir fatlaða, og sækja um slíkan passa á mótinu. Einnig er hægt að sækja um með því að senda tölvupóst á skraning@fakur.is.
Passinn er límmiði sem þarf að límast í hornið á framrúðu bílsins sem viðkomandi verður á.