Án óeigingjarns starfs sjálfboðaliða er ekki hægt að halda Landsmót. Til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til Landsmóts þurfum við öflugan hóp sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt á vogarskálarnar til að gera upplifun keppenda og gesta sem eftirminnilegasta.
Þá er sjálfboðavinnan skemmtilegur vettvangur fyrir þá sem vilja kynnast öðru áhugafólki um hestamennsku og starfa í skemmtilegum fjölþjóðlegum hópi.
Sjálfboðaliðar fá ókeypis aðgang að Landsmóti, ókeypis aðgang að tjaldsvæði, fæði á meðan vöktum stendur og varning merktan Landsmóti.
Nánari upplýsingar um sjálfboðaliðana er að finna í þessum hnappi:
Nánar um sjálfboðaliða á Landsmóti
Athugasemdir