Marín og Ída efst í Unglingaflokki

Nú er sérstakri forkeppni í Unglingaflokki á Landsmóti lokið. Marín frá Lækjarbrekku 2 og knapi hennar Ída Mekkin Hlynsdóttir eru efstar eftir forkeppni með 8,79 í einkunn.

Keppni hófst klukkan 09:00 og sýndu 104 keppendur hross sín í sérstakri forkeppni. Allar einkunnir má finna hér að neðan og á heimasíðu mótsins undir Niðurstöður. Í HorseDay appinu geturðu líka fundið allar niðurstöður og sundurliðaðar einkunnir. 30 efstu hestarnir og knaparnir fara svo áfram í milliriðla sem fara fram á fimmtudaginn klukkan 08:30.

Til hamingju allir hestar og knapar!


Athugasemdir