Knapafundur

Sunnudaginn 30. júní kl.18:00 verður haldinn knapafundur fyrir alla keppendur mótsins, foreldrar eru velkomnir með keppendum í yngri flokkum. Á knapafundi mun mótsstjóri og yfirdómarar (gæðinga- og íþróttakeppni) fara yfir allar helstu reglur og fyrirkomulag keppninnar auk þess að svara fyrirspurnum frá keppendum.

Sigríður Björnsdóttir dýralæknir mun fara yfir heilbrigðisskoðanirnar "Klár í keppni" og fyrirkomulag þeirra á mótinu.

Oddur Ólafsson frá HorseDay mun einnig lýsa og segja frá mótsskrá mótsins sem er að þessu sinni í HorseDay appinu og hvernig keppendur geta nýtt sér appið til hins ítrasta.

Knapafundurinn fer fram í reiðhöllinni, sem er nú búið að breyta í matsal. 

 


Athugasemdir