Keppni í barnaflokki lokið!

Nú er keppni í barnaflokki lokið og það er óhætt að segja að sýningar yngstu knapanna voru stórglæsilegar! Efsti knapi í barnaflokki eftir sérstaka forkeppni er Elimar Elvarsson á Sölku frá Hólateigi með einkunnina 8,98. Næst á eftir er Viktoría Huld Hannesdóttir á Þin frá Enni með 8,97 og þriðja eftir forkeppni er Linda Guðbjörg Friðriksdóttir á Sjóð frá Kirkjubæ með 8,82. Til að ná inn í milliriðla, eða í hóp topp 30 knapa, þurfti að lágmarki 8,45 í einkunn. 


Athugasemdir