Íbishóll sigurvegari ræktunarbúa!

Frábærar sýningar ræktunarbúa!

Það voru frábærar sýningar ræktunarbúa sem sáust hér á aðalvellinum í gærkvöldi en samtals 12 ræktunarbú komu fram. Samhliða sýningu ræktunarbúa fór fram símakosning þar sem áhorfendur höfðu kost á að kjósa sitt ræktunarbú áfram og gefa því kost á að koma aftur fram á laugardagskvöldinu.

Fjöldi áhorfenda tók þátt í símakosningunni og það var ræktunarbúið frá Íbishóli sem sigraði símakosninguna og mæta því aftur á stóra sviðið í kvöld. Til hamingju Íbíshóll!

Þau mæta því í kvöld kl.19:50.

Hér má sjá niðurstöður símakosningarinnar:
1. Íbishóll 504 atkv.
2. Flugumýri 304 atkv.
3. Ragnheiðarstaðir 279 atkv.
4. Lækjarbrekka 187 atkv.
5. Þjóðólfshagi 1 158 atkv.
6. Sumarliðabær 134 atkv.
7. Hrafnagil 108 atkv.
8. Álfhólar 78 atkv.
9. Eystri-Hóll 71 atkv.
10. Þúfur 53 atkv.
11. Margrétarhof 53 atkv.
12. Strandarhöfuð 42 atkv.


Athugasemdir