Hundar eru velkomnir að kíkja á landsmótið í Víðidalnum með eigendum sínum. Það er þó nauðsynlegt fyrir eigendur þeirra að kynna sér nokkrar reglur um veru þeirra á svæðinu. Hugið fyrst og fremst að velferð þeirra, því áreitið er mikið á staðnum og dýrin geta orðið stressuð og óörugg og þannig líður engum vel. Fyrir suma hunda væri því skynsamlegast að vera í pössun á meðan landsmóti stendur.
- Hundar verða að vera í bandi á svæðinu
- Eigendur verða að hreinsa upp eftir hundinn sinn án undantekninga
- Geltandi hundar valda ónæði og trufla nálæga gesti
- Lausir hundar eru stranglega bannaðir
- Hundar eru ekki leyfðir í veitingaaðstöðu í reiðhöll né í markaðstjaldi
- Passið upp á hunda sem eru í bílum. Hafa þá einungis þar í skamman tíma, sérstaklega ef heitt er í veðri.
- Vertu fyrirmyndar hundeigandi. Það er hægt að vera Landsmótssigurvegari í hundahaldi!
Brot á reglum þessum get leitt til brottreksturs af svæðinu.
Athugasemdir