Gangandi gestir ekki reiðvegum

Kæru landsmótsgestir! 

Við biðlum til gangandi gesta að nýta ekki reiðvegi sem göngustíga. Það er afar mikilvægt að við höldum reiðvegum fríum fyrir ríðandi umferð. Gangandi gestir nýti sér malbikaðar götur, sem hafa verið lokaðar fyrir bílaumferð. 

Það getur skapað mikla hættu, bæði fyrir gangandi og ríðandi umferð, ef gangandi umferð fer inn á reiðstígana. 

Sýnum hestum og knöpum þá tillitssemi og göngum ekki á reiðstígunum. 

 


Athugasemdir