27.04.2026
Áhugi á Landsmóti 2026 hefur farið fram úr væntingum, en metfjöldi miða hefur þegar selst í forsölu. Aldrei áður hafa jafnmargir tryggt sér miða svo snemma, sem staðfestir stöðu viðburðarins sem einn af hápunktum íslensks sumars.
20.04.2026
Smáforritið HorseDay hefur verið í mikilli þróun síðustu árin og sér HorseDay alfarið um niðurstöður hestamóta hérlendis. HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni sem ekki er lengur gefin út á prenti en í smáforritinu er hægt að finna allar upplýsingar um Landsmótið á einum stað.
20.04.2026
LH hefur tekið út félagafjölda hvers hestamannafélags og koma niðurstöður fram í töflunni hér fyrir neðan, og þá jafnframt hversu marga keppendur hvert félag hefur rétt á að senda í hvern flokk gæðingakeppninnar á landsmótinu að Hólum í sumar.
28.03.2026
Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum stóðu nýverið fyrir áhugaverðu málþingi á Hólum í Hjaltadal, þar sem sjónum var beint að áhrifum viðburða á samfélög og einstökum þáttum í skipulagi þeirra.