
Forsala aðgöngumiða á LM 2010 er hafin. Afsláttur er verulegur sé miði keyptur í forsölu, allt að 25%, og hægt að spara bæði fé og fyrirhöfn. Í forsölu eru seldir aðgöngumiðar, stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgangi að rafmagni.
Forsalan fer fram rafrænt, smellið hér: https://landsmot.grapewire.net eða farið aftur á forsíðu www.landsmot.is.
Söluferlið er einfalt og er væntanlegur landsmótsgestur leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref.
Unnt er að kaupa vikupassa og helgarpassa í forsölu. Lægra gjald er greitt fyrir unglinga 14 – 17 ára og ekkert fyrir börn 13 ára og yngri. Einnig er hægt að kaupa stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgangi að rafmagni í forsölu.
Forsölunni lýkur 1.maí 2010 og hækkar miðaverð eftir það. Hver miði sem keyptur er í forsölu gildir einnig sem miði í happdrættispotti Landsmóts og samstarfsaðila. Um hver mánaðarmót verður dregið um veglega vinninga, til að mynda tvo vikupassa á Landsmót, leikhúsmiða fyrir tvo í boði VÍS, beisli og DVD diska frá versluninni LÍFLANDI.









