Bookmark and Share

Landsmót hestamanna 2010

Landsmót hestamanna

Frábćr fjölskylduskemmtun

                                                

Fréttir

Miđasala Landsmóts 2010 fer vel af stađ


Forsala aðgöngumiða á Landsmót sem og sala í stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgengi að rafmagni hófst 25. febrúar.  Að sögn starfsmanna Landsmóts 2010 fer salan mjög vel af stað og ljóst að margir eru að nýta sér þau afsláttarkjör sem bjóðast þegar miðar eru keyptir fyrir 1. maí.
Auk forsöluafsláttar er aðildarfélögum Landssambands hestamannafélaga og Bændasamtaka Íslands boðin 25% afsláttur af almennu miðaverði. Lesa meira

Dregiđ í happadrćtti Landsmóts og samstarfsađila

Anna Lilja, starfsmađur Landsmóts, Ţór Bćring, fulltrúi VÍS og Regína fulltrúi Líflands međ vinningum dagsins
Fjöldi vinninga var dreginn í happadrætti Landsmóts og samstarfsaðila í verslun Líflands í dag. Í pottinum lentu allir þeir sem keypt hafa miða í febrúar.  Eins og fram hefur komið stendur happadrættið yfir á meðan forsala aðgöngumiða er í gangi eða til 1. maí.  Dregið er í lok hvers mánaðar eða alls þrisvar sinnum. 
Lesa meira

Forsala ađgöngumiđa er hafin

Landsmót á Hellu 2008.  Sigur frá Hólabaki.

Forsala aðgöngumiða á LM 2010 er hafin. Afsláttur er verulegur sé miði keyptur í forsölu, allt að 25%, og hægt að spara bæði fé og fyrirhöfn. Í forsölu eru seldir aðgöngumiðar, stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgangi að rafmagni. 

Lesa meira

Samstarf Landsmóts og Líflands innsiglađ

Berţóra Ţorkelsdóttir, framkvćmdastjóri Líflands, Haraldur Örn Gunnarsson, sölustjóri Landsmóts ásamt Jónu Fanneyju Friđriksdóttur, framkv.stjóra Landsmóts 2010
Undirbúningur Landsmóts 2010 er á fullu skriði enda að mörgu að huga þegar að svo viðamiklum viðburði kemur.  Eftir áralangt samstarf liggur Lífland ekki á liði sínu og í morgun var undirritaður samstarfssamningur á milli fyrirtækisins og Landsmóts.
Lesa meira

Forsala ađgöngumiđa hefst nćstu daga

Verđskrá ađgöngumiđa á Landsmót er ađ finna hér á valstikunni undir ,,miđasala
Nú styttist í að forsala aðgöngumiða á Landsmót 2010 hefjist hér á netinu. Þess má geta að töluverður verðmunur er á miðum keyptum í forsölu og einnig njóta aðildarfélagar í LH og BÍ sérstakra vildarkjara.


Lesa meira

Landsmót í 60 ár

Mynd:  Gígja Einars
Landsmót hestamanna verður haldið í 19. sinn árið 2010 á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 27. júní - 4. júlí. Hestamennskan er fjölskylduíþrótt og Landsmót er uppskeruhátíð hestamanna á öllum aldri.  Landsmót er frábær fjölskylduskemmtun og hápunktur hestamennskunnar á Íslandi.
Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf